Playas:
Albert
Daníel
Ari Gunnar
Halldór
Stefnir
Frikki Frikks
Finnur Bobson
Lovísa
Dögg
Dísa
Júlíana
Gauti Jan
Dabi
Orri Tómasson
Guðjón
Billy Corgan
Old school:
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
júlí 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
|
12 og blogg!
partýbloggarinn Bergur ætlar að halda uppi skemmtun í allt kvöld með því að blogga ferska færslu hér og nú! allt að gerast í beinni og enginn veit hvað gera skal næst!! Partýbloggarinn sér um allt! segir frá helginni, merkilegum viðburðum og það allra helsta í slúðrinu svo má ekki gleyma því að partýbloggarinn Bergur kemur öllum í gott skap með skemmtilegum leikjum og fullt af EITURLYFJUM!!!
Jæja, það helsta er að ég er ekki nógu ánægður með frammistöðu mína í skólanum, ég gleymdi að ég er búnað skrópa geðveikt mikið og er samasem fallinn í allavega dönsku. Og ég er með það fáar einingar að ég má eiginlega bara falla á einum áfanga annars er ég fallinn á fokkings önn! þannig ég ætla að taka mig á (í öllu nema dönsku því ég veit ég á ekki eftir að ná henni)!!!
æj fokkit maður... það voru tónleikar á föstudaginn og Sindri Sæti tók geðveikt mikið af flottum myndum... www.sindri.us tjékk it
og hér með segji ég bless
Það er eitthvað fokking klukk-æði í gangi hjá þessu bloggliði og var Tinna að "núverandi" klukka mig... já krakkar mínir.. það er komið að því.. þetta er jafnslæmt og ruslpóstur.. bara aðeins skemmtilegra.. þetta hljómar líka aðeinsmeira spennandi, meira læv og uppspunað.. jæja.. hér kemur það... get ready:
Núverandi tími: 14:13 Núverandi föt: nærbuxur (og buxur, peysa, bolur, sokkar og inniskór) Núverandi skap: nettur á kanntinum Núverandi hár: vel gelað með 2 klukkutíma vinnslu hárgreiðsluna mína!! (djók) Núverandi pirringur: fóturinn minn er marinn og bólginn.. samt svoldið svalt. Núverandi lykt: inní-herbergi lyktin frá mér Núverandi hlutur sem þú ættir að vera að gera: vera í sleik Núverandi skartgripir: stóra G-Unit hálsmennið mitt Núverandi löngun: skipta um geisladisk.. þessi var að klárast Núverandi ósk: klára Sonic 3 Núverandi farði: Bara þetta venjulega.. ekkert Núverandi eftirsjá: Að hafa næstumþví brotið á mér fótinn í gærkvöldi Núverandi vonbrigði: Samlokan mín er búin Núverandi skemmtun: Þetta Núverandi ást: Wilco Núverandi staður: Heima Núverandi bók: Góði Dátinn Svejk Núverandi bíómynd: Evil Dead 3 Núverandi Íþrótt: Dansa Núverandi Tónlist: PRML SCRM Núverandi lag á heilanum: Jesus, Etc. með Wilco Núverandi blótsyrði: Fokkaðuþér Núverandi msn manneskjur: Dögg Núverandi desktop mynd: Geðveikt flott photoshop mynd af mér Núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Spila á tónleikum Núverandi hlutir á veggnum: Fatahengi, plaggöt og myndir...
já, þetta var aldeilis gaman.. ég klukka Ara Gunnar og Daníel Helgason
ofurtöffarinn ég ætla hér með að sleppa því að blogga í dag og læra...
úps.
jæja. ég get svosem talað um Airwaves hátíðina. ég fílaði hana í drasl. Það sem stóð uppúr var Bang Gang, Clap Your Hands Say Yeah, Ratatat, Skátar, Reykjavík, I Adapt, We Painted The Walls, Þórir og margt fleira skemmtilegt sem ég sá á þessari margblessuðu hátíð, og ég vona að ég plati sjálfan mig í það að fara á næsta ári einnig.
Það er einnig svolítið gaman að segja frá því að við erum að fara spila í Breiðholtsskóla annað kvöld, styrktartónleikar svo skólinn geti fengið sér betri græjur í DJ-systemið.. mér finnst það frekar svalt, Hello Norbert eru einnig að spila. Þannig þetta verður svona Breiðholtsskóla-festival-hjá-þeim-sem-eru-að-meikaða... ég veit ekkert hvað kostar inn en ef þig langar máttu örugglega reyna að komast inn og fara á old school ball.. ég kvet sérstaklega þá sem voru í Breiðholtsskóla að (allavega reyna) að mæta á þetta, og þá tala ég sérstaklega um þig, Ari Gunnar!
Talandi um skóla, ég ætti virkilega að fara hisja uppum mig og farað læra smá.. ble.
KJEPPINN AÐEINS AÐ LÍFGA UPPÁ LÚKKIÐ SITT HÉRNA!!!
high fidelity
topp 5 í iPodnum: 1. The Blood Brothers - Burn, Piano Island, Burn 2. Hot Water Music - A Flight And A Crash 3. Wilco - A Ghost is Born 4. Spoon - Gimme Fiction 5. Iron + Wine - The Creek Drank The Cradle
topp 5 í heimagræjunum: 1. Þórir - Anarchists are Hopeless Romantics 2. Graveslime - Roughness and Toughness 3. Múm - Yesterday was Dramatic, Today is OK 4. Múm - Finally We Are No One 5. Blur - Parklife
bara keepin' you informed...
Frekar Sprellaður Sunnudagur Hér á Ferð
ég þarf að segja ykkur frá sunnudeginum mínum sem er að fara verða búinn. ég vaknaði og gat ekki farið í sturtu því pabbi er að bæta og breyta eitthverju í baðherberginu okkar þannig ég skolaði bara hárið mitt smá í vaskinum. Það sem er samt frekar frásögufærandi er það að ég fór með Alberti á fund varðandi tónleika okkar í næstu viku á kaffi hljómalind. Fundurinn gekk vel og allir voru frekar sáttir. Svo réttir maður sem heitir Markús höndina sína til Alberts og segir "já allavega, ég heiti Markús" og Albert svarar auðvitað "Já ég er Albert" svo réttir Markús mér höndina og segist heita Markús og þá svara ég einfaldlega "Albert" og fatta þetta ekki í smá stund og segji frekar hálfvitalega "Nei úps, ég heiti Bergur" þetta var ekki gott first impression fyrir hann um mig held ég.. óneij. Jæja, eftir þetta frekar vandræðalega augnablik og gott hláturskast ætlum við Albert að halda heim, eða.. ég í vinnuna og hann heim til sín. Við löbbum ágætis leið niðrað Lækjartorgi þegar ég segji alltíeinu "heyrðu, við erum að fara í vitlausa átt" og þá rökræðum við um stund hvort ég ætti að taka strætó með Alberti niðrað Hlemm og svo labba í vinnuna (sem er s.s. Red Chili, hliðiná hljóðfærahúsinu fyrir þá sem ekki vita). ég tímdi því ekki og þurfti ég að leggja Albert og mig í þá skömm að labba aftur framhjá Kaffi Hljómalind í leiðinni að Hlemm.. allt frekar skömmustulegt og kjánalegt verð ég að segja. Heilinn minn er eitthvað að klikka á mér.
Meðan ég er að tala um Big Kahuna gæti ég þessvegna bent á það að það að það á það að það á það að það eru komnar fáar nýjar myndir á síðuna og einnig eru 2 tónleikar frammundan sem má kalla svona "off venue" á Airwaves. www.big-kahuna.tk til að líta á það.
Annars hef ég lítið meira að segja.. nema jú, ég fer á Airwaves, og keypti mér einnig Evil Dead trílógíuna á DVD í gær (HOW COOL IS THAT???)
Mæli með: Múm - Finally We Are No One Múm - Yesterday Was Dramatic - Today is OK Graveslime - Roughness and Toughness Wilco - A ghost is born Evil Dead 2 (Evil dead 3) The Army of Darkness og þessvegna bara Evil Dead 1.. ágætt að sjá hana svona í leiðinni.
bæ
Bergur og Rúmið: myndasaga
|