ble
hey there..tími til að uppfæra bloggið mitt. ég er kvefaður, samt frekar hress, svolítið þreyttur, afslappaður og líður samt bara vel svona ef á heildina ef litið. Gengur reyndar frekar brösulega í skólanum en ég læt það ekki bitna á skapinu mínu.
fyrsta mál á dagskrá er nýja sigur rós platan, ,,takk". ég fíla hana ótrúlega vel. Nokkur lýsingarorð sem eiga við plötuna; falleg, tær, sæt, kröftug, björt, tilfinningarík. Já, þessi plata toppar () finnst mér en ekki alveg jafn góð og ágætis byrjun. gef þessari 9/10. ég er ekki enn farinn að geta valið mér bestu og verstu lögin en ég get allavega staðfest það að það var hvergi sem mig langaði að spóla yfir eitthvað á plötunni við hlustun. Rosalega góð plata, endilega kaupið hana bara!ég er hættur að bera út fyrir fréttablaðið. ég er mjög ánægður með það. sérstaklega núna þar sem það er farið að verða svolítið kaldara úti en um sumarið. Líka bara það að ég get sofið í um 1 og hálfan tíma í viðbót í staðinn fyrir að þurfa að fara út að gera leiðindavinnu fyrir leiðindafólk og leiðindapening. núna er það auðvitað bara Red Chili og skemmtilegheit.
ég er gersamlega tómur í hausnum...
meðmæli dagins:
sigur rós - takk... (kemur á óvart)
nick cave - no more shall we part
gítarspil seint um kvöld... kósí

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home