Playas:
Albert
Daníel
Ari Gunnar
Halldór
Stefnir
Frikki Frikks
Finnur Bobson
Lovísa
Dögg
Dísa
Júlíana
Gauti Jan
Dabi
Orri Tómasson
Guðjón
Billy Corgan

Old school:
  • febrúar 2005
  • mars 2005
  • apríl 2005
  • maí 2005
  • júní 2005
  • júlí 2005
  • ágúst 2005
  • september 2005
  • október 2005
  • 26.9.05

    hæ aftur

    ég sat í strætó í gær, á leiðinni heim úr vinnuni.. þegar strætisvagnastjórinn kom inn og settist við stýrið setti ég minn alseinasta strætómiða í baukinn til hans.. labbaði aðeins lengra, ennþá með Hot Water Music í eyrunum, settist í sæti vinstra megin rétt hjá miðju-útgangnum.. svo ég þurfti ekki að hreyfa mig mikið er ég ætlaði að fara úr honum.. allavega, ég leit í veskið mitt.. það var galtómt.. ég á engann pening, plús það að ég á enga strætómiða (sem þýðir að ég get ekkert farið.. nema labbandi) og mér gengur hreint út sagt ömurlega í skólanum.. hvað lætur mér líða svona ótrúlega vel að ég gleymi öllum þessum vandamálum hjá mér? jú, það er tónlistin, allt sem ég geri tengist tónlist.. ég er meiraðsegja í vinnu aðallega til að hafa efni á öllum þessu græjum og geisladiskum. ég held ég gæti ekki hreyft mig ef ég ætti ekki iPod eða CD pleijer.. en allavega.. ég er ekki að starta neitt þunglyndisblogg, ég er fullsáttur eins og það er..

    ég sá loksins mjög umtalaða mynd um helgina, Amelié, guð minn góður hvað mér fannst hún skemmtileg! Bara rosalega sæt mynd, skemmtilegar persónur, ég legg áherslu á þetta með persónurnar, söguþráðurinn var æði! Svo má ekki gleyma sándtrakkinu sem mamma mín á á geisladisk og ég er búnað vera með það á repeat síðan ég sá þessa blessuðu mynd. Mig langar til Frakklands.





    Sigur Rós bara að fara kíkja á klakann? Stemming fyrir því? Kjepparnir munu eflaust flytja eldheitu singúlana eins og "Flugufrelsarinn", "Untitled 1", "Svefn-G-Englar" og síðan en ekki síst "Glósóli" sem er að tröllríða öllum vinsældarlistum um allan heim! veit eitthver hvenær miðasalan byrjar því kjéllinn ætlar að sjálfsögðu að mæta á svæðið og vera hress með Sigur Rós! Takk fær allavega 4 og hálfa af 5 mögulegum hjá mér og telst það vera nokkuð gott! Um að gera að grípa tækifærið og tjékka á þessum eldheitu íslendingum sem hafa ekki spilað á tónleikum hérna í rúm 3 ár! ekki viltu vera orðinn gamall og hugsa "djöfullinn, ég hefði átt að fara á sigur rós!" óneeeeijj ég ætla allavega ekki að gera það og skella mér á þetta!

    Beggi Bögg kveður að sinni og nú fáum við að heyra nýjasta lagið frá 50 Cent, "Penis pimpin' da whole hood with my caddie on the street and the ho´s dropping meat"

    Allavega.. plata dagsins: Amelié - Original Motion Picture Soundtrack eftir Yann Tiersen

    bæbb